Tíðni óþæginda frá hreyfi- og stoðkerfi hjá sjúkraþjálfurum á Íslandi

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Margir finna fyrir óþægindum frá hreyfi- og stoðkerfi einhvern tíma á lífsleiðinni. Orsakir óþægindanna geta verið af mörgum toga og margþættar en tengjast oft álagi í starfi, rangri líkamsbeitingu og/eð...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Elín Björg Harðardóttir, Hrefna Regína Gunnarsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Félag íslenskra sjúkraþjálfara 2008
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/15574
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Margir finna fyrir óþægindum frá hreyfi- og stoðkerfi einhvern tíma á lífsleiðinni. Orsakir óþægindanna geta verið af mörgum toga og margþættar en tengjast oft álagi í starfi, rangri líkamsbeitingu og/eða óheppilegri vinnuaðstöðu. Sérsvið sjúkraþjálfara er að greina vandamál tengd hreyfi- og stoðkerfi, veita meðferð og leiðbeina varðandi líkamsbeitingu svo að draga megi úr hættu á óæskilegu álagi. Erlendar rannsóknir gefa til kynna að þrátt fyrir mikla þekkingu sjúkraþjálfara á þessu sviði fari þeir ekki varhluta af óþægindum frá hreyfi- og stoðkerfi. Stórar kannanir í Bandaríkjunum og Ástralíu sýndu til að mynda að meirihluti sjúkraþjálfara (60–90%) höfðu óþægindi frá stoðkerfi, flestir í mjóbaki (1,2). Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna tíðni óþæginda frá hreyfi- og stoðkerfi hjá sjúkraþjálfurum á Íslandi og bera saman við tíðni hjá öðrum starfsstéttum á Íslandi og hjá sjúkraþjálfurum erlendis. Jafnframt að kanna tengsl óþæginda við starfsvettvang, álag í starfi og aðra þætti. Engar birtar niðurstöður eru til um tíðni óþæginda frá hreyfi- og stoðkerfi á sjúkraþjálfurum hérlendis og því er samanburður við fyrri niðurstöður ekki mögulegur. Spurningalisti var sendur til allra meðlima Félags íslenskra sjúkraþjálfara (FÍSÞ) í febrúar 2005 en þeir voru 408 talsins, 306 konur og 102 karlar. Spurningalistinn var að miklu leyti sá sami og notaður hefur verið til að kanna tíðni óþæginda frá stoðkerfi hjá starfsstéttum hér á landi, svo sem hjúkrunarfræðingum, flugfreyjum, kennurum, starfsfólki í öldrunarþjónustu og fiskvinnslufólki (3,4,5,6,7). Í þessari grein verða aðeins birtar helstu niðurstöður úr rannsókninni en hægt er að nálgast BS verkefnið í húsnæði sjúkraþjálfunarskorar að Skógarhlíð 10