Summary: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Áfengi er aðalvímuefni Íslendinga. Um leið og það slær birtu í brjóst mikils meirihluta landsmanna veldur neysla þess gífurlegum heilsufarslegum skaða. WHO hefur áætlað að yfir 9% af snemmbærri fötlun/dauða megi rekja beint til áfengis (aðeins reykingar og hækkaður blóðþrýstingur valda meiri skaða) (1). Mikilvægt er að átta sig á að áfengi veldur ekki einungis skaða hjá þeim sem teljast áfengissjúkir heldur dreifist vandinn á miklu stærri hóp áfengisneytenda, aðstandenda og almennings. Þannig veldur áfengi hlutfallslega meiri skaða hjá ungu fólki, aðallega vegna slysa og sjálfskaða, en þeim eldri. Þegar litið er á þjóðfélagið í heild er sterk fylgni milli skaða og heildarmagns áfengis sem drukkið er (en sama á við um tíðni ölvunardrykkju og skaða af hennar völdum). Það er því mikið áhyggjuefni að áfengisneysla landsmanna hefur vaxið jafnt og þétt, rétt um 50% á síðustu 10 árum.
|