Summary: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Þegar þetta er ritað er um það bil eitt ár liðið frá skipun nýrrar ritstjórnar Læknablaðsins. Ritstjórnin hefur eytt umtalsverðum tíma í að skilgreina og skrásetja sem flesta þætti er lúta að starfsemi blaðsins. Afrakstur þessarar vinnu verða nokkur skjöl sem prentuð verða í blaðinu og/eða birt á vefsíðu þess, sum einu sinni, önnur með vissu millibili. Skjöl þessi fjalla um verklag ritstjórnar, innri vinnureglur, skilgreiningu og dreifingu ábyrgðar o. fl. Enn fremur verður skerpt á flokkun innsends efnis, lengd þess o.s.frv. Sömuleiðis verður fjallað um aðferðafræði ritrýni, skyldur ritstjórnar gagnvart ritrýnum og vinnulag ritrýna sjálfra. Fyrsta skjalið fjallar um ritstjórn og annað starfsfólk Læknablaðsins, í reynd vinnureglur þessa hóps, og birtist á bls. 68 í þessu tölublaði. Ekki er ætlunin að birta þessar tilteknu vinnureglur nema í þetta skipti enda eru þær vinna einnar ritstjórnar og óvíst að hin næsta kjósi sér sama vinnulag.
|