Útkoma spangar í eðlilegri fæðingu, áhrif meðferðar og stellingar á útkomu spangar

Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Tilgangur þessarar rannsóknar var tvíþættur, 1. Kanna tíðni heillar spangar og tegundir rifa hjá konum sem fæddu eðlilega á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og tíðni spangarklippinga og tengsl þeirra við ri...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Margrét I. Hallgrímsson, Ólöf Ásta Ólafsdóttir
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Ljósmæðrafélag Íslands 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/2336/10772
Description
Summary:Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn View/Open Tilgangur þessarar rannsóknar var tvíþættur, 1. Kanna tíðni heillar spangar og tegundir rifa hjá konum sem fæddu eðlilega á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og tíðni spangarklippinga og tengsl þeirra við rifur; 2. Kanna hvort fæðingarstelling, meðferð spangar og þyngd eða höfuðummál barns hefði áhrif á útkomu spangar. Um lýsandi framvirka rannsókn með þverskurðarsniði var að ræða. Gögnum var safnað, með skráningarlista hönnuðum af rannsakanda, frá konum sem fæddu eðlilega frá nóvember 2001 til mars 2002. Úrtakið voru 460 konur. Notuð var lýsandi tölfræði. Helstu niðurstöður: Tíðni heillar spangar var 32,5%. Tíðni 1° rifa var 30,3%, tíðni 2° rifa var 32,3% og tíðni 3° rifa var 4,4% . Alls voru 8,7% allra frumbyrja með 3° rifu og 2,2% fjölbyrja. Tíðni spangarklippinga var 8,4%. Ekki mældust skýr tengsl milli stellingar og útkomu spangar. Þrjár meðferðir höfðu áhrif á útkomu spangar. Að hvetja til rembings og að nudda/- toga spöng höfðu marktækt neikvæð áhrif. Eigið val konunnar á stellingu á öðru stigi hafði marktækt jákvæð áhrif. Ekki var marktækt samband milli fæðingarþyngdar og höfuðummáls barns og útkomu spangar.