Summary: | Í þessu riti eru birtar fimm ritgerðir eftir sex höfunda sem kynntar voru hinn 10. Júní 2010 á ráðstefnu Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands sem bar heitið „Atvinnulíf við nýjar aðstæður.“ Tilgangur ráðstefnunnar var að líta fram á veginn og leggja á ráðin um endurreisn efnahagslífsins. Höfundarnir sex hafa fjölbreyttan bakgrunn og innsýn í íslenskt efnahagslíf. Saman gefa greinar þeirra mynd af mörgum þeim verkefnum sem ráðast þarf í á næstunni, umgerð efnahagslífsins og innviðum í ljósi reynslu síðustu ára. Fjallað er um bóluhagkerfið sem nú er liðið undir lok, starfsumhverfi fyrirtækja, nýsköpun, skipulag og starfsemi viðskiptabanka og stjórn peningamála.
|